Fotbolti.net
18.07.26 - 22:38
Sölvi Haraldsson

„Samtal sem stjórnarmeðlimir Vals og yfirmaður fótboltamála þurfa að eiga“

Auglýsing
Chris ræðir félagaskipti síðustu daga og leik Valsliðsins í kvöld.

Chris ræðir félagaskipti síðustu daga og leik Valsliðsins í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér fannst þetta vera villtur leikur, allavegana spennandi leikur. Mín fyrstu viðbrögð er að ég er leiður fyrir hönd leikmannanna, ég get ekki sett neitt út á þeirra framlag í kvöld, mín fyrstu viðbrögð eru að ég er leiður fyrir þeirra hönd.“ sagði Chris Brazell, þjálfari Vals, eftir 3-2 tap gegn Fram á Hlíðarenda í kvöld.
Lestu um leikinn: Valur 2 - 3 Fram
„Kannski sýnir það bara hvar við erum sem lið í dag en þegar við spiluðum vel í dag vorum við frábærir en þegar við spiluðum illa vorum ekki góðir. En ég endurtek mig, strákarnir voru frábærir í dag og framlagið þeirra var til staðar en fullt hrós á Fram í kvöld.“

Novak Tufegdzic var sá yngsti í sögunni til að byrja í efstu deild karla.

„Mér fannst hann frábær. Ég veit hvað hann getur og ég sagði það fyrir leik að ég var að byrja honum því hann er frábær í fótbolta. Frammistöðulega séð fannst mér hann stórkostlegur þessar 60 mínútur. Frábært hjá honum, ég veit ekkert hvað ég mun skilja eftir mig hérna en ég vona að ég muni skilja eftir eitthvað fyrir ungu strákana, sérstaklega á næsta ári að það sé tækifæri fyrir þá að spila fyrir jafn stórt félag og Val.“

Chris vill ekki meina að Valsliðið hafi verið óheppnir, þeir þurfi bara að stíga upp í þessari stöðu.

„Ég held að við erum ekki óheppnir, það væri auðvelt fyrir mig að koma hingað og segja það. Við erum að spila leikinn. Ég held að allir viti að við erum í erfiðri stöðu en þetta er staða þar sem ég verð að stíga upp. Ég mun gefa mig allan fram og strákarnir líka.“

Adam Ægir yfirgaf félagið á dögunum og gekk í raðir KA, Chris ræður stöðuna á þeim skiptum.

„Vandamálið hjá Adam var sambandið milli hans og Vals. Sambandið okkar var í fyrsta flokki en hann var í mjög erfiðri stöðu. Hann sýndi mér mikla virðingu og ég held að hann þurfi bara að spila fótbolta, það er best fyrir hann að mínu mati. Ég óska honum góðs gengis. Hvernig við getum fyllt hans skarð er eitthvað samtal sem yfirmaður fótboltamála og stjórnarmeðlimir Vals þurfa að eiga. Ég þjálfa bara það sem er fyrir framan mig sama hvort það er 3. flokkur, 2. flokkur eða Patrick Pedersen.“

Viðtalið við Chris Brazell má finna í spilaranum hér að ofan í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.