Zidane fær fjögurra ára samning

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Félagaskiptasérfræðingurinn Fabrizio Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn sinn á skipti Zinedine Zidane til franska landsliðsins.
Zidane er óumdeild goðsögn í fótboltaheiminum og náði sögulegum árangri við stjórnvölinn hjá Real Madrid, sem er eina félagslið sem hann hefur nokkurn tímann stýrt.
Nú tekur hann við Frakklandi eftir að landsliðið lék undir stjórn Didier Deschamps í fjórtán ár. Deschamps og Zidane voru samherjar í franska landsliðinu í sex ár og unnu bæði heimsmeistaratitil og Evrópumeistaratitil.
Zidane gerir fjögurra ára samning við franska landsliðið og mun vera kynntur sem nýr þjálfari seinna í mánuðinum.