Fotbolti.net
18.07.26 - 21:23
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deildin: Fram skoraði þrjú á fimm mínútum á Hlíðarenda

Besta deildin: Fram skoraði þrjú á fimm mínútum á Hlíðarenda
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur 2 - 3 Fram
1-0 Lúkas Logi Heimisson ('10)
1-1 Freyr Sigurðsson ('23)
1-2 Haraldur Einar Ásgrímsson ('26)
1-3 Fred Saraiva ('28)
2-3 Lúkas Logi Heimisson ('53)
Rautt spjald: Bjarni Mark Duffield, Valur ('68)
Lestu um leikinn: Valur 2 - 3 Fram
Valur og Fram áttust við í seinni leik dagsins í Bestu deild karla og náðu heimamenn forystunni snemma þegar Lúkas Logi Heimisson skoraði með frábæru skoti langt utan vítateigs.

Fyrri hálfleikurinn var afar fjörugur, bæði lið fengu marktækifæri áður en Lúkas Logi skoraði og svo kom magnaður kafli hjá gestunum úr Úlfarsárdal sem skoruðu þjrú mörk á fimm mínútum.

Freyr Sigurðsson jafnaði fyrst metin eftir góða sendingu frá Ægi Jarli Jónassyni á 23. mínútu og þremur mínútum síðar átti Ægir Jarl aðra stoðsendingu, í þetta skiptið eftir hornspyrnu. Tveimur mínútum eftir það nýtti Fred Saraiva sér afar slæm mistök í vörn Vals til að stela boltanum og setja þriðja mark Fram. Rosalegur fimm mínútna kafli á Hlíðarenda.

Gestirnir héldu áfram að sækja og fengu færi til að bæta öðru marki við áður en flautað var til leikhlés. Heimamenn mættu grimmir til leiks út í síðari hálfleikinn og minnkaði Lúkas Logi muninn snemma eftir fyrirgjöf frá Tryggva Hrafni Haraldssyni.

Korteri síðar fékk Bjarni Mark Duffield að líta seinna gula spjaldið sitt fyrir augljóst brot og tókst tíu Valsörum ekki að jafna metin þrátt fyrir flottar tilraunir, svo lokatölur urðu 2-3 eftir afar fjörugan slag.

Fram endurheimtir annað sæti Bestu deildarinnar með þessum sigri, þar er liðið með 33 stig eftir 15 umferðir. Þetta var aftur á móti þriðji tapleikurinn í röð hjá Val sem situr eftir með 19 stig.
Besta deildin: Fram skoraði þrjú á fimm mínútum á Hlíðarenda
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.