EM U19 kvenna: Þriggja marka tap í fyrsta leik

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Austurríki 3 - 0 Ísland
1-0 Denise Lueger ('28 )
2-0 Ronja Leidler ('45 )
3-0 Tina Krassnig ('93 )
Lestu um leikinn
1-0 Denise Lueger ('28 )
2-0 Ronja Leidler ('45 )
3-0 Tina Krassnig ('93 )
Lestu um leikinn
Íslenska U19 ára kvennalandsliðið tapaði 3-0 fyrir Austurríki í fyrsta leik sínum í riðlakeppni Evrópumótsins í Zenica í Bosníu og Hersegóvínu í dag.
Stelpurnar lentu undir á 28. mínútu þegar Denise Lueger skoraði nánast upp úr engu. Jónína Linnet og Helga Rut Einarsdóttir féllu báðar í teignum og eftirleikurinn var auðveldur fyrir Lueger, sem var fyrst á boltann og setti hann framhjá Herdísi Höllu Guðbjartsdóttur og í netið.
Undir lok fyrri hálfleiks bætti Ronja Leidler við öðru marki. Það var hálfgert kjaftshögg fyrir íslenska liðið, sem hafði verið í leit að jöfnunarmarki. Fyrirgjöf kom inn á teiginn, Herdís Halla var of sein út og Leidler kom boltanum í netið.
Austurríska liðið gerði svo endanlega út um leikinn í uppbótartíma. Teresa Frizberg vann boltann af Sóleyju Eddu Ingadóttur, kom honum á Tinu Krassnig sem setti boltann framhjá Herdísi Höllu.
Erfið byrjun á mótinu hjá stelpunum okkar, sem mæta næst Spánverjum á miðvikudag. Leikurinn hefst klukkan 15:00 og verður í beinni útsendingu á vef UEFA.