Ingimar Arnar: Verð að sýna að maður eigi að byrja inn á
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór tapaði 4-2 gegn Val í kvöld. Valur var með 2-0 forystu í hálfleik en Þórsarar náðu að jafna áður en Valur kláraði leikinn.
Ingimar Arnar Kristjánsson kom inn á hjá Þór í hálfleik og minnkaði muninn. Hann var tekinn niður af Bjarna Mark Antonssyni þegar hann skoraði og hann meiddist á öxl.

Lestu um leikinn: Þór 2 - 4 Valur
„Ég veit ekki alveg hvað gerðist. Ég var kominn í gegn og held það hafi verið Bjarni Mark sem straujaði mig. Ég veit ekki, við þurfum að taka stöðuna á morgun," sagði Ingimar.
Ingimar var spurður að því hvort hann myndi taka markið eða rautt spjald og víti.
„Ég tek markið allan daginn, það er gott fyrir sjálfstraustið. Það er leiðinlegt að það skiptir engu máli. Við vorum með góðan skriðþunga svo skorar Kristó (Kristófer Kristjánsson) en svo fer þetta," sagði Ingimar.
Ingimar var svekktur með að byrja ekki inn á í leiknum.
„Maður er alltaf svekktur að byrja ekki inn á. Maður var pirraður í gær en svo verður maður að stilla sig inn á leikdegi og reyna að breyta einhverju og sýna að maður eigi að byrja inn á í næsta leik," sagði Ingimar.