Jón Þór ánægður með Birni Snæ: Hann er auðvelt skotmark þegar illa gengur


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Þetta var bara frábær frammistaða hjá Stjörnuliðinu," sagði Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar eftir 3-1 sigur gegn KA í dag.
„Við byrjum leikinn frábærlega og fyrri hálfleikurinn er virkilega góður. Ég var pínu svekktur að komast ekki inn í hálfleikinn með betri stöðu. Ég er bara virkilega ánægður með frammistöðu liðsins, síðan koma KA menn mjög sterkir út í seinni hálfleikinn. Mikil orka sem var í KA liðinu í upphafi seinni hálfleiks, og þeir ná inn marki. Þá gerist það sem að svo oft vill verða, það er langt síðan að Stjörnu liðið vann leik þannig að það var mikil spenna innan liðsins. Svo gerðu menn það virkilega vel, og náðu að snúa því við. Við fundum aftur takt í spilinu okkar og byrjuðum að skapa okkur aftur færi og herja á þá. Stubbur var frábær í markinu í dag, og bara frábærlega gert að ná að klára þetta í restina," sagði Jón.
Jón er tiltölulega ný tekinn við sem þjálfari liðsins en þetta var fyrsti sigur Stjörnunnar undir hans stjórn.
„Ég held það snúist ekkert um mitt handbragð eða eitthvað svoleiðis. Þetta snýst um að snúa þessu gengi við og það gerðu strákarnir frábærlega hér í dag. En þetta er bara einn leikur og áfram þurfa menn að leggja hart að sér til þess að snúa þessu við. Við viljum komast á sigurbraut, en eins og ég segi, þú gerir það ekki með því að vinna einn leik. Þannig það er áfram mikil vinna og að leggja hart að sér. Það er ekkert flókið," sagði Jón.
Birnir Snær Ingason hefur verið töluvert í umræðunni, þar sem menn telja hans frammistöður hafa verið vonbrigði. Hann svaraði því í dag með marki og góðri frammistöðu.
„Birnir Snær er bara frábær leikmaður og býr yfir ótrúlegum gæðum. Við erum lánsamir að hafa hann í okkar liði, hann er búinn að skora núna tvo heimaleiki í röð. Eins og liðið náði hann sér ekki strik úti í Eyjum og fær mikla gagnrýni fyrir það. Birnir Snær er bara vanur því, hann er auðvelt skotmark þegar illa gengur, en það er svo sem ekkert nýtt á hans ferli. Hann hefur átt frábærlega við það frá mínu sjónarhorni," sagði Jón.


