Þorri Mar: Ég hefði kannski ekki átt að fagna alveg svona mikið


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta var langþráður sigur og ég er bara mjög, mjög sáttur," sagði Þorri Mar Þórisson leikmaður Stjörnunnar eftir 3-1 sigur gegn KA í dag.
Jón Þór Hauksson er nýlega tekinn við starfi aðalþjálfara Stjörnunnar og þetta var hans fyrsti sigur. Þorri segir að Jón sé að koma vel inn í hlutina í Garðabænum.
„Hann er tiltölulega nýkominn þannig það tekur alveg tíma fyrir hann að koma sér meira inn í hlutina og svona. En hann er að koma með góða orku og maður finnur að það er að koma meiri meðbyr með okkur í leikjunum. Þetta er eitthvað sem við getum byggt ofan á. Mér fannst við stjórna þessum leik frá byrjun til enda og við getum tekið það með okkur í næsta leik," sagði Þorri.
Þorri skoraði loka mark leiksins, en þetta var fyrsta markið hans fyrir Stjörnuna. Þar að auki kom það gegn KA mönnum þar sem Þorri spilaði frá 2019-2023.
„Ég hefði kannski ekki átt að fagna alveg svona mikið, en þetta var langþrátt mark. Það er búið að vera langt bataferli hjá mér og maður er bara að komast aftur til baka. Maður missti sig kannski aðeins í augnablikinu, en þetta var mjög sætt," sagði Þorri.
Þorri hefur verið frá lengi en segist vera kominn í miklu betra stand í dag.
„Þetta hefur tekið lengri tíma en ég ætlaði. Ég bara geri mitt besta til að fá sem flestar mínútur svo verður bara hitt að koma í ljós. Ef ég get hjálpað liðinu, þá er ég til staðar," sagði Þorri.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.


