Fotbolti.net
28.06.26 - 16:28
Brynjar Ingi Erluson

Útlitið svart hjá Loga og Túfa

Srdjan Tufegdzic, fyrrum þjálfari Grindavíkur, KA og Vals, er þjálfari Värnamo

Srdjan Tufegdzic, fyrrum þjálfari Grindavíkur, KA og Vals, er þjálfari Värnamo

Canon

Mynd: Varnamo

Sænska B-deildarliðið Värnamo tapaði fyrir Landskrona, 1-0, í deildinni í dag, en þetta var níunda tapið í síðustu tíu deildarleikjum liðsins.
Eina mark leiksins gerði Edi Sylisufaj úr vítaspyrnu í síðari hálfleik.

FH-ingurinn Logi Hrafn Róbertsson var að venju í byrjunarliði Värnamo en var tekinn af velli í síðari hálfleik.

Það er orðið ansi heitt undir þjálfaranum Srdjan Tufegdzic, sem hefur áður stýrt Grindavík, KA og Val hér á landi.

Stuðningsmenn hafa kallað eftir höfði hans en liðið hefur ekki unnið leik síðan í apríl, þegar það fór á þriggja leikja sigurgöngu.

Värnamo er í næstneðsta sæti deildarinnar með 10 stig, sex stigum frá öruggu sæti og aðeins einu stigi fyrir ofan botnlið Sundsvall.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.