Bologna er að spila gegn Parma þessa stundina og er liðið þremur mörkum yfir þegar síðari hálfleikurinn er í gangi.
Í vinstri bakverðinum hjá Bologna er hinn skoski Aaron Hickey en hann er fæddur árið 2002.
Bologna skrifaði á Twitter í kvöld og skaut þar á Liverpool og Arsenal. Andy Robertson gerði sig sekan um slæm mistök þegar Arsenal komst yfir í leiknum.
„Hugsið ykkur að vera með skoskan vinstri bakvörð og fá á ykkur mark í fyrri hálfleiknum," skrifaði Bologna á Twitter.
Robertson var þó fljótur að bæta upp fyrir mistökin og kom hann Liverpool í forystu eftir að Sadio Mane jafnaði metin. Kieran Tierney er í bakverðinum hjá Arsenal.
Færsluna hjá Bologna má sjá hér fyrir neðan.
Imagine having a Scottish left back and conceding in the first half 🙃 https://t.co/HhqM6y9qKq
— Bologna FC 1909 (@BolognaFC1909en) September 28, 2020
Athugasemdir