Fotbolti.net
29.11.26 - 14:02
Brynjar Ingi Erluson

Championship: Verðandi lærisveinar Freys unnu öruggan sigur í erkifjendaslag

Championship: Verðandi lærisveinar Freys unnu öruggan sigur í erkifjendaslag
Canon

Mynd: Swansea AFC

Swansea 3 - 0 Cardiff City
1-0 Joseph Opoku ('15 )
2-0 Ben Cabango ('57 )
3-0 Zan Vipotnik ('69 )
Stuðningsmenn Swansea treysta því að Freyr sé rétti kosturinn - „Ég fyrirgef öllum“
TENGT EFNI

Stuðningsmenn Swansea treysta því að Freyr sé rétti kosturinn - „Ég fyrirgef öllum“

Swansea City, verðandi lærisveinar Freys Alexanderssonar, unnu sannfærandi 3-0 sigur á erkifjendum sínum í Cardiff City í ensku B-deildinni í dag.

Eins og áður hefur komið fram er Freyr á leið til Swansea, en félagið er nú að leggja lokahönd á viðræður við Rosenborg um að fá hann til félagsins.

Ashley Williams hefur stýrt Swansea til bráðabirgða síðan Vitor Matos yfirgaf félagið og hefur honum tekist vel til.

Swansea gerði sér lítið fyrir og burstaði Cardiff 3-0 í dag, en Joseph Opoku kom liðinu yfir á 15. mínútu. Boltinn barst þá inn í vítateiginn frá vinstri og fór í gegnum teiginn áður en Opoku tók við honum fyrir miðju marki og afgreiddi hann örugglega í netið.

Swansea gerði síðan út um leikinn um miðjan síðari hálfleik þegar Ben Cabango og Zan Vipotnik bættu við tveimur mörkum á aðeins tólf mínútna kafla.

Með sigrinum skaust Swansea upp í sjöunda sæti deildarinnar með 30 stig, en Cardiff situr í nítjánda sæti með 18 stig.

Þetta var að öllum líkindum síðasti leikur Williams sem bráðabirgðastjóra Swansea, en búist er við að Freyr verði kynntur til leiks á allra næstu dögum. Gangi allt eftir verður fyrsta verkefni hans við stjórnvölinn gegn Bristol City um næstu helgi.

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Middlesbrough18+1235
2Wolves18+1235
3West Brom18+1135
4Stoke City18+735
5Birmingham18+1332
6Southampton18+1831
7QPR18+729
8Swansea18+328
9Blackburn18+128
10West Ham18+1427
11Sheffield Utd18+627
12Norwich18+926
13Portsmouth18+226
14Wrexham18025
15Bolton18-921
16Charlton Athletic18-820
17Cardiff City18-519
18Bristol City18-1119
19Millwall18-718
20Watford18-1516
21Lincoln City18-1616
22Burnley18-1014
23Preston NE18-1313
24Derby County18-2111
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.