29.11.26 - 13:33
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Fyrsti sigur Udinese síðan í ágúst

Lovric leyfði Udinese-mönnum að anda aðeins léttar með góðu sigurmarki

Mynd: EPA

Udinese 1 - 0 Fiorentina
1-0 Sandi Lovric ('8 )
1-0 Sandi Lovric ('8 )
Udinese fagnaði langþráðum 1-0 sigri á Fiorentina í 13. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar í dag.
Heimamenn höfðu ekki unnið deildarleik síðan í ágúst og voru fyrir leikinn komnir á botn deildarinnar.
Það var því kærkomið fyrir Udinese að komast aftur á sigurbraut, en Sandi Lovric skoraði sigurmarkið strax á 8. mínútu. Hann lét þá vaða með hörkuskoti sem hafði viðkomu í varnarmanni áður en boltinn fór í slána og inn.
David De Gea hélt Fiorentina inni í leiknum með nokkrum góðum markvörslum eftir það, en gestirnir áttu erfitt með að skapa sér færi hinum megin.
Fiorentina reyndi að sækja jöfnunarmarkið undir lokin, en allt kom fyrir ekki og Udinese fagnaði sínum fyrsta deildarsigri í tæpa þrjá mánuði.
Með sigrinum lyfti Udinese sér af botninum og upp í 17. sæti með níu stig, jafnmörg og Fiorentina sem situr í 16. sæti.