29.11.26 - 13:23
Brynjar Ingi Erluson
Fabregas vill fá Zirkzee á láni

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ítalska félagið Como ætlar sér að styrkja sóknarlínuna í janúarglugganum og segir Gazzetta dello Sport að félagið sé að íhuga af fullri alvöru að fá Joshua Zirkzee á láni frá Manchester United.
Moise Kean er á meiðslalistanum hjá Como og hefur félagið því úr fáum kostum að velja í framlínunni.
Cesc Fabregas, þjálfari Como, hefur mikið dálæti á Zirkzee, sem hefur fengið fá tækifæri hjá United á tímabilinu og ekki náð að sýna sitt rétta andlit þegar hann hefur fengið sæti í byrjunarliðinu.
Como ætlar ekki að eyða háum fjárhæðum í janúarglugganum og því myndi það henta félaginu afar vel að fá Zirkzee á láni. United er sagt opið fyrir slíkri lausn og gæti því orðið af félagaskiptunum.
Ítalska félagið hefur einnig augastað á Sergio Camello hjá Rayo Vallecano og Sebastiano Esposito, sem leikur með Sassuolo á láni frá Cagliari, en Zirkzee er efstur á óskalista Fabregas.
Zirkzee er 25 ára gamall og átti frábæran tíma hjá Bologna á árunum 2022 til 2024. Þar vakti hann mikla athygli fyrir frammistöðu sína, var meðal annars valinn í lið ársins og hlaut viðurkenningu sem besti U23 leikmaður deildarinnar.