Fotbolti.net
31.08.17 - 20:31
Magnús Þór Jónsson

Heimir: Einbeitum okkur nú að því að ná í Evrópusæti

Auglýsing
Heimir: Einbeitum okkur nú að því að ná í Evrópusæti
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heimir Gu&eth;j&oacute;nsson var&eth; a&eth; j&aacute;ta sig sigra&eth;an &aacute; Kaplakrikavelli &iacute; kv&ouml;ld gegn KR, hva&eth; fannst honum um leikinn?<br />
<br />
<em>&quot;M&eacute;r fannst fyrri h&aacute;lfleikur &iacute; lagi en seinni h&aacute;lfleikur var ekki g&oacute;&eth;ur. &nbsp;Vi&eth; spilu&eth;um alltof miki&eth; til baka, &thorn;a&eth; vanta&eth;i hreyfingu og vi&eth; fundum ekki &thorn;&aelig;r lausnir sem vi&eth; vildum&quot;.</em>
Miklar breytingar voru á liði og leikmannahópi FH í kvöld út af meiðslum og leikbönnum sem kallaði á heilmiklar breytingar á uppstillingu liðsins.



"Það voru meiðsl og við þurftum að breyta en FH liðið sem spilaði þennan leik var að minu mati mjög sterkt og lið eins og FH á að þola verða fyrir smá skakkaföllum sem eru hluti fótboltans, en seinni hálfleikur var bara ekki nógu góður."



Gæti verið að álagið sem því fylgir að spila marga leiki að undanförnu sé farið að telja hjá FH-liðinu?



"Ég veit það ekki, ég hélt að það væri alltaf skemmtilegra að spila heldur en að vera að æfa, sérstaklega þegar vika er á milli leikja og við erum komnir í ágúst og september þá hlýtur að vera skemmtilegra að spila en vera á æfingasvæðinu."



Heimir setti ungan hafsent inná í kvöld, Teit Magnússon en sá er á eldra ári í þriðja flokki.



"Teitur hefur staðið sig vel á æfingum hjá okkur.  Atli Viðar var veikur, Davíð bað um skiptingu og þá kom Teitur inná og stóð sig vel.  Hann er framtíðarleikmaður, ekki spurning!



Eftir þetta tap er meistaravonin búin og nú þurfum við bara að einbeita okkur að því að ná Evrópusæti".




Nánar er rætt við Heimi í viðtalinu sem fylgir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.