Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 31. október 2022 15:27
Elvar Geir Magnússon
Guy Smit á sölulista hjá Val
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur sett hollenska markvörðinn Guy Smit á sölulista samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net en hann er með samning við félagið út næsta ár.

Smit kom fyrst hingað til lands og lék með Leikni 2019 og 2020, hann átti stóran þátt í að hjálpa liðinu upp í deild þeirra bestu og svo að halda sér þar.

Fyrir þetta sumar gekk hann í raðir Vals og spilaði tíu leiki með liðinu í Bestu deildinni en varð fyrir meiðslum áður en Frederik Schram var sóttur frá Lyngby og hirti aðalmarkvarðarstöðuna hjá félaginu.

Fyrir hjá Val er Sveinn Sigurður Jóhannesson sem hefur verið varamarkvörður.

Smit er 26 ára gamall og var meðal annars í herbúðum NEC Nijmagen í heimalandinu áður en hann kom í íslenska boltann.
Athugasemdir
banner
banner
banner