Fotbolti.net
31.12.12 - 12:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Síðasta lið ársins

Frank Lampard skoraði tvö gegn Everton.

Frank Lampard skoraði tvö gegn Everton.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er stutt milli umferða í ensku úrvalsdeildinni þessa dagana. Um helgina fór fram umferð og hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar.

Að þessu sinni kemur úrvalsliðið frá Soccernet. Frank Lampard er meðal manna sem fá sæti að þessu sinni eftir mörkin tvö í gær.


Markvörður: Gerhard Tremmel (Swansea City)
Þessi 34 ára Þjóðverji fyllti skarð Michel Vorm af prýði í 2-1 sigri gegn Fulham.

Hægri bakvörður: Russell Martin (Norwich City)
Besti maður Norwich í tapleiknum gegn Manchester City.

Miðvörður: Michael Dawson (Tottenham Hotspur)
Virðist hafa fundið sjálfstraustið. Vann fjölmarga skallabolta í 2-1 sigrinum gegn Sunderland.

Miðvörður: Nemanja Vidic (Manchester United)
Það er orðið sjaldgæft að Manchester United haldi hreinu. Vidic átti stóran þátt í því að liðið fékk ekki mark á sig gegn West Brom.

Vinstri bakvörður: Leighton Baines (Everton)
Átti stórgóðan leik þrátt fyrir 2-1 tap Everton gegn Chelsea.

Miðjumaður: Emmerson Boyce (Wigan Athletic)
Boyce var sífellt ógnandi í glæsilegum sigri á Aston Villa.

Miðjumaður: Frank Lampard (Chelsea)
Fyrirliðinn fór fyrir liði Chelsea með því að skora bæði mörkin í sigrinum á Everton.

Miðjumaður: Gareth Bale (Tottenham Hotspur)
Skyndisóknir Tottenham gegn Sunderland voru stórhættulegar og það var að stóru leyti Gareth Bale að þakka.

Sóknarmaður: Luis Suarez (Liverpool)
Þessi frábæri leikmaður gerði út um vonir QPR strax í upphafi leiks.

Sóknarmaður: Edin Dzeko (Manchester City)
Skoraði tvö í 4-3 sigrinum gegn Norwich og átti heiðurinn af öðru marki.

Sóknarmaður: Theo Walcott (Arsenal)
Walcott er kominn á gott skrið sem fremsti sóknarmaður og er farið að líkja honum við Thierry Henry!

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.