„Vonandi löng bók sem hefst með góðu opnunaratriði“
„Það er mikil spenna, búin að vera mjög skemmtileg vika hingað til og hún verður betri með deginum,“ sagði Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, á fjölmiðlafundi KSÍ í gærdag fyrir bikarúrslitaleik liðsins gegn Þrótti.
Grindavík/Njarðvík hefur unnið báða viðureignir liðanna gegn Þrótti í Bestu deildinni en Gylfi les lítið í það. „Það gefur okkur fullt en gefur þeim líka fullt. Ég held að allt svona fari út um gluggann í leikjum af svona stærðargráðu. Við vitum ef við eigum góðan leik þá getum við unnið þetta lið,“ segir Gylfi.