Ætlaði að „taka Cunha" þegar hann opnaði markareikninginn - „Liðið mjög vel á Akureyri"

Lét vaða og setti boltann út við stöng.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Tók við böltanum og lét vaða rétt fyrir innan vítateigslínu.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Lék á hægri kantinum og átti góðan leik gegn FH.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Svona fagnar Matheus Cunha yfirleitt.

Mynd: EPA

Úr leiknum á sunnudag.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Markinu fagnað.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Er á láni frá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lét vaða og setti boltann út við stöng.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik
Þorri ræddi við Fótbolta.net um markið, tímann fyrir norðan og ýmislegt annað.
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst
„Það var mjög gaman að spila þennan leik, leið mjög vel á sunnudaginn. Undirbúningurinn var mjög góður; æfingarnar fyrir leikinn voru góðar. Eftir leikinn gegn ÍBV var komin stemningin orðin mjög góð í hópnum og í upphitun fann ég að það væri mikil orka í liðinu. Mér fannst við svo hlaupa yfir FH, fannst þeir eiginlega aldrei eiga séns á móti okkur. Orkan frá stuðningsmönnum var frábær og veðrið var gott."
Þorri Ingólfsson skoraði sigurmarkið gegn Hafnfirðingum! ???????? #bestadeildin pic.twitter.com/qqlSl3dfb8
— Besta deildin (@bestadeildin) September 7, 2026
Spilaði ekkert í leiknum á undan
Þór hefur nú unnið tvo leiki í röð. Þorri var í byrjunarliðinu gegn FH en kom ekkert við sögu gegn ÍBV. Var pirrandi að spila ekkert gegn ÍBV?
„Maður vill alltaf spila en ég held að skiptingarnar sem Siggi gerði í þeim leik hafi verið réttar; við vorum að verjast og Fannar (Daði) er drullugóður varnarlega á kantinum. En maður er alltaf svekktur, vill alltaf spila."
Búinn að koma sér fyrir og náði að slaka á
Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, sagði eftir leikinn gegn FH að Þorri hefði verið einn besti leikmaður liðsins á æfingum undanfarnar tvær vikur. Þorri fékk sömuleiðis hrós frá liðsfélaga sínum, Gyrði Hrafni Guðbrandssyni eftir leikinn á sunnudag.
„Ég var orðinn þægilegur, búinn að koma mér fyrir hér á Akureyri, búinn að kynnast liðfélögunum og aðeins búinn að ná að slaka á. Ég er búinn að vera æfa skotin og náði að taka það inn í leikinn sem var mjög gaman."
Liðið mjög vel á Akureyri
Þorri er á láni hjá Þór frá Víkingi, kom í glugganum. Hann vakti athygli síðasta vetur fyrir frammistöðu sína með Víkingi á undirbúningstímabilinu. Var einföld ákvörðun að fara til Akureyrar í sumar?
„Aðdragandinn að þessu var mjög stuttur og mér hefur liðið mjög vel síðan ég kom hingað. Það hefur alltaf verið sól sem er veisla. Eiður (aðstoðarþjálfari) sótti mig á flugvöllinn og strákarnir tóku vel á móti mér. Ég held þetta hefði verið aðeins flóknara ef ég hefði ekki þekkt strákana og ekki verið tekið svona vel á móti mér," segir Þorri sem er unglingalandsliðsmaður og hefur spilað með nokkrum Þórsurum í unglingalandsliðunum.

Auðveld ákvörðun að fara norður - „Örugglega erfiðast fyrir mömmu"
Kominn á bíl
Hann er nýorðinn 17 ára og er kominn með bílpróf.
„Ég var að fá bíl í síðustu viku, þetta er alvöru leikbreytir; mun betra að vera kominn með bíl. Ég var svolítið að vinna með að rölta eða fara á hopp hlaupahjóli. Þetta er miklu þægilegra, stutt í allt og aldrei umferð."
Geta unnið öll liðin
Þór er í 10. sæti deildarinnar, markatölunni frá 9. sæti og stigi fyrir ofan fallsæti. Fimm umferðir eru eftir af Íslandsmótinu og er næsti leikur gegn Val á útivelli á sunnudag.
„Ef við mætum með sömu orku í alla leikina þá sé ég ekki af hverju við getum ekki unnið öll liðin. Við erum með nokkuð breiðan hóp og mjög sterkan. Ef við mætum með sömu orku þá held ég að við getum hlaupið yfir öll þessi lið og unnið," segir Þorri að lokum.

Tók við böltanum og lét vaða rétt fyrir innan vítateigslínu.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Lék á hægri kantinum og átti góðan leik gegn FH.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Svona fagnar Matheus Cunha yfirleitt.

Mynd: EPA

Úr leiknum á sunnudag.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Markinu fagnað.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Er á láni frá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
