Fotbolti.net
09.09.26 - 22:32
Helgi Inguson

Sigurhrinu HK í Kórnum lokið - „Er þá ekki komið að því að vinna útileikinn í staðinn?"

Auglýsing
„Þetta er bara hálfleikur

„Þetta er bara hálfleikur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
HK tók á móti Fylki í fyrri viðureign liðanna í umspili Lengjudeildarinnar. Leikar enduðu 2-3, Fylki í vil, en Fótbolti.net ræddi við Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfara HK, eftir leik.
Lestu um leikinn: HK 2 - 3 Fylkir
„Þetta var hörkuleikur, þetta voru tvö lið sem vildu vinnu og settu allt í þetta. Mér fannst fyrri hálfleikur bera þess vott að það væri mikið undir. En svo opnaðist þetta í seinni hálfleik. Ég sagði við strákana að það liðið sem myndi gera færri mistök myndi vinna og mér fannst það þannig í dag," sagði Gunnar.

„Mér fannst við byrja seinni hálfleik ágætlega og mér fannst þeir ekkert vera að ógna eitthvað mikið, ef ég segi alveg eins og er. En svo hættum við að gera það sem gerum vel og fórum í annan fótbolta. Það byrjaði að slitna svolítið á milli okkar og þeir fóru að finna sín bestu svæði."

HK fór í gegnum deildarkeppnina taplaust í Kórnum og tapið í kvöld það fyrsta á heimavelli í sumar. Gengi liðsins hefur aftur á móti ekki verið gott á útivelli.

„Það hefur mikið verið talað um að við töpum ekki í Kórnum en við gerum það núna. Er þá ekki komið að því að vinna útileikinn í staðinn?" velti Gunnar sér fyrir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.