Fotbolti.net
09.09.26 - 22:58
Helgi Inguson

Theodór Ingi: Ákvörðun sem ég og Kári tókum sjálfir

Auglýsing
Theodór Ingi Óskarsson

Theodór Ingi Óskarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Þetta var í rauninni mjög mikill ping pong leikur," sagði Theodór Ingi Óskarsson, leikmaður Fylkis, eftir sigurleik í Kórnum í kvöld. Liðið heimsótti HK í fyrri leik liðanna í umspili Lengjudeildarinnar.
Lestu um leikinn: HK 2 - 3 Fylkir
„Það tók mann smá tíma að koma sér inn í leikinn en síðan þegar maður komst inn í leikinn byrjaði þetta allt að smella. Það var mjög gott að ná í úrslit á erfiðum útivelli," sagði Theodór.

Theodór byrjaði leikinn á hægri kantinum en um miðbik fyrri hálfleiks skipti hann við Kára Sigfússon og fór yfir á þann vinstri.

„Þetta var ákvörðun sem að ég og Kári tókum sjálfir. Við fórum að Heimi og spurðum hann og allt í góðu með það. Við höfum verið að vinna með þetta í sumar þar sem við getum báðir verið á sitthvorum kantinum. Það virkaði í dag og skilaði góðum úrslitum."

"Liðið þarf að halda fókus og spila sinn leik á sunnudaginn. Þetta verður erfiður leikur og við þurfum að fá alla stuðningsmennina á völlinn, það gerir mikið fyrir okkur," sagði Theodór að lokum.

Theodór var eitt andlita Treyjudagsins síðastliðinn föstudag, hann ræddi stoltur um Treyjudaginn í viðtalinu sem má finna í spilaranum fyrir ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.