Fotbolti.net
09.09.26 - 22:12
Helgi Inguson

Heimir: Best að spyrja foreldra hans að því

Auglýsing
Heimir Guðjónsson, þjálfari HK

Heimir Guðjónsson, þjálfari HK

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Fylkir heimsótti HK í Kórnum í fyrri leik liðanna í umspili Lengjudeildarinnar. Sigurvegari einvígisins leikur í hreinum úrslitaleik á Laugardalsvelli um að komast í Bestu deildina á næsta ári. Fylkir bar sigur úr býtum í leiknum og Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, ræddi við Fótbolta.net eftir leik.
Lestu um leikinn: HK 2 - 3 Fylkir
„Við erum sáttir með sigurinn en áttum okkur á því að það er leikur á sunnudaginn. Mér finnst HK-liðið frábært og þeir voru miklu betri en við í fyrri hálfleik. Við vorum allt í lagi varnarlega en á boltanum vorum við ekki nægilega góðir.

Við sýndum karakter í seinni hálfleik og jöfnunarmark Kára hjálpaði okkur. Við náðum betra floti á boltanum og heilt yfir var þessi seinni hálfleikur allt í lagi á löngum köflum,"
sagði Heimir um leikinn.

Hinn 15 ára Magnús Daði Ottesen lék vel í dag og lagði m.a. upp eitt mark Fylkis. Fótbolti.net greindi frá því fyrr í sumar að Bayern München hefði mikinn áhuga á kappanum. Heimir kveðst ekki hafa hugmynd um hvort hann leiki með Fylki á næsta tímabili.

„Nei, ég hef ekki hugmynd um það. Ég held að það sé best að spyrja foreldra hans að því eða hann sjálfan. Maggi er frábær strákur og gríðarlega efnilegur. Hann hefur bara verið óheppinn með meiðsli í sumar. Hann hefur komið vel inn í þessi leiki upp á síðkastið, verið að skora og standa sig vel," sagði Heimir að lokum.
Magnús Daði er sonur Sölva Geirs Ottesen og Söndru Karlsdóttur.

Magnús Daði er sonur Sölva Geirs Ottesen og Söndru Karlsdóttur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.