10.09.26 - 11:14
Kári Snorrason
„Ekki viss um að hefndarþorstinn verði sterkasta tilfinningin“
Auglýsing

„Spennan er búin að vera byggjast jafnt og þétt upp frá því að við tryggðum okkur í þennan úrslitaleik.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ekki viss um að hefndarþorstinn verði sterkasta tilfinningin á laugardaginn.“

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikurinn hefst klukkan 16:00 á laugardaginn.

Mynd: KSÍ

Þróttur og Grindavík/Njarðvík eigast við í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna. Leikurinn fer fram næstkomandi laugardag á Laugardalsvelli.
KSÍ efnti til blaðamannafundar á Laugardalsvelli í gær þar sem Fótbolti.net ræddi við Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfara Þróttar, og spurði hann út í leikinn.

„Spennan er búin að vera byggjast jafnt og þétt upp frá því að við tryggðum okkur í þennan úrslitaleik. Hún er alveg til staðar og við finnum fyrir henni,“ segir Jóhann og var í kjölfarið spurður út í mótherjann, Grindavík/Njarðvík.
„Andstæðingurinn er mjög verðugur, sterkur. Þær hafa komið mér, eins og eflaust mörgum, á óvart í sumar. Þetta er mjög vel mannað lið, miklar breytingar, góður þjálfari og gengið vel. Mjög spennandi verkefni ser er í gangi hjá þeim,“ segir Jóhann.
Grindavík/Njarðvík hefur unnið báðar viðureignir liðanna í Bestu deildinni á tímabilinu. Eru Þróttarar í hefndarhug?
„Það er spurning hvað verður ofan á. Ég er ekki viss um að hefndarþorstinn verði sterkasta tilfinningin á laugardaginn. Ég held að þetta verði nýr leikur. Ef það vantar blóðbragð á tennurnar þá má alveg hugsa um það að þær hafa farið illa með okkur tvisvar í sumar.“
Ósáttur við leiktímann
Jóhann stakk niður penna fyrr í vikunni og ritaði pistil á Facebook síðu sinni þar sem hann gagnrýndi að leikurinn væri spilaður ofan í lokaumferð Lengjudeildarinnar.
Lokaumferð Lengjudeildarinnar hefst klukkan 14:00 og bikarúrslitaleikurinn hefst klukkan 16:00.
„Mér finnst þetta það stór viðburður að hið minnsta sem við getum gert er að koma því þannig fyrir að aðrir iðkendur og stuðningsmenn fótbolta hafi möguleika að sækja þennan viðburð. Með þessu fyrirkomulagi er ekki verið að gera það.
Mér finnst það ekki vera á félögunum sjálfum að bregðast við þessu, eins og ég veit að nokkur félög hafa gert í Lengjudeildinni. Mér finnst að við sem erum að halda þetta, KSÍ, eigi að koma þessu þannig fyrir að allir geta sótt þennan skemmtilega viðburð og fá fleiri á völlinn,“ segir Jóhann að lokum.

TENGT EFNI
Kallar eftir breytingum og vill fjölga liðum í Bestu deild kvenna