Fotbolti.net
09.09.26 - 19:55
Magnús Atlason

Aron Snær: Byrjum á að klára tímabilið og svo tek ég stöðuna

Auglýsing
Aron Snær: Byrjum á að klára tímabilið og svo tek ég stöðuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Njarðvík og Þróttur áttust við í fyrri viðureign sinni í umspili Lengjudeildarinnar. Þróttur vann þá sterkan 1-0 útisigur á Njarðvíkingum. Aron Snær Ingason lagði upp mark Þróttar og Fótbolti.net náði tali af honum eftir leik.
Lestu um leikinn: Njarðvík 0 - 1 Þróttur R.
"Fínt að vinna en þetta er bara klisja, það er bara 1-0, það er bara hálfleikur."

Aron og Sigurður Egill Lárusson spiluðu mjög vel saman í dag en Sigurður skoraði sigurmarkið.

"Ég veit að hann kemur alltaf með seinni bylgjunni inn í teig, og ég sá hann vera á leiðinni og hann kláraði þetta vel. Hann er helvíti góður í fótbolta þannig að það er ekki annað hægt en að tengja við hann."

Hvernig sér Aron fyrir sér seinni leikinn öðruvísi heldur en leikinn sem var að klárast?

"Það verður kannski spilaður meiri fótbolti þar, í Laugardalnum. Við vorum eins og beljur á svelli mest allan tímann."

Valur og fleiri félög í Bestu deildinni hafa sýnt Aroni áhuga. "Geturðu eitthvað tjáð þig um það?"

Nei, ég skoða þetta. Byrjum á að klára tímabilið og svo tek ég stöðuna."

Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.