09.09.26 - 20:30
Magnús Atlason
Davíð Smári um dómarann: Getuleysi eða hugleysi
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Njarðvík og Þróttur áttust við í fyrri viðureign sinni í umspili Lengjudeildarinnar. Njarðvík tapaði þá 1-0 gegn Þrótti á heimavelli. Fótbolti.net að sjálfsögðu á staðnum og náði tali af Davíð Smára Lamude, þjálfara Njarðvíkur eftir leik.
Lestu um leikinn: Njarðvík 0 - 1 Þróttur R.
"Ég er bara svekktur en samt að einhverju leyti ánægður með Njarðvíkurliðið. Mér fannst við ekki alveg on it í fyrri hálfleik. Kannski litaðist eitthvað að atviki sem gerðist í byrjun leiks að við upplifðum að allt væri á móti okkur."
"En seinni hálfleikurinn frábær og leikmenn sem komu inn í leikinn frábærir og ég er bara gríðarlega ánægður með liðið in the end þó að við höfum ekki unnið hérna í dag."
Á 3. mínútu slapp Oumar Diouck í gegn. Þórhallur markvörður Þróttar stoppaði hann fyrir utan teig og Njarðvíkingar vildu meina að það hafi gerst með ólöglegum hætti. "Hvað finnst þér um þetta?"
"Ja ég meina þetta er annaðhvort getuleysi eða hugleysi. Ég held að það sé ekkert þar á milli. Það verða einhverjir aðrir að dæma um það en auðvitað sérstakt að á miðviðkudegi þegar allir dómarar landsins eru nánast lausir að ég held að svona stór leikur sé settur upp í hendurnar á gríðarlega efnilegum dómara en að einhverju leyti óreyndum dómara.
Njarðvíkingar voru líklegir til þess að skora undir lok leiks.
"Mér fannst bara eitt lið á vellinum í seinni hálfleik, ég held að það hafi allir orðið vitni af því og ég held að ég sé ekkert að fara með rangt mál þar og ég held það halli ekkert á Þróttarana þótt ég segi það, að mér fannst Njarðvíkurliðið vera með öll völd á þessum leik."
Hvernig sér Davíð seinni leikinn fyrir sér?
"Við ætlum allavega að mæta þangað með blóð á tönnunum og okkur finnst það hafa hallað á okkur í dag og það getur gefið okkur orku."
Horfðu á viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.