Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. júní 2015 21:14
Björgvin Stefán Pétursson
Sindri Björns kastaði af sér þvagi á KR-völlinn
Sindri í miðjunni á miðjunni.
Sindri í miðjunni á miðjunni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skemmtileg atvik varð í hálfleik í leik KR og Leiknis R. í kvöld.

Sindri Björnsson leikmaður Leiknis ákvað að skvetta úr skinnsokknum úti á velli í hálfleik í kvöld.

Hrafnhildur Agnarsdóttir, leikmaður kvennaliðs KR, tók myndband af þessu öllu saman og birti það síðan á Twitter síðu sinni.

Hvort að klósettið hafi verið upptekið eða hann hafi einfaldlega ekki nennt inn er spurning. Síðar í leiknum skellti Sindri sér svo í markið hjá Leikni eftir að Eyjólfur Tómasson fékk rautt spjald.

Smelltu hér til að lesa nánar um leikinn




Athugasemdir
banner
banner
banner