Heimild: BBC
Svarið við spurningunni í fyrirsögninni er nei, en næstum því.
Titilvörn Leicester hingað til er sú næst versta í sögu enska boltans. Englandsmeistararnir hafa safnað 13 stigum úr 14 leikjum.
Titilvörn Leicester hingað til er sú næst versta í sögu enska boltans. Englandsmeistararnir hafa safnað 13 stigum úr 14 leikjum.
Ipswich er eina liðið sem hefur byrjað tímabilið verr sem meistari, það var 1962-63 sem Ipswich hafði 12 stig úr fyrstu 14 leikjunum (ef reiknað er út að þrjú stig hefðu verið gefin fyrir sigur).
Ipswich náði að halda sæti sínu í deildinni, hafnaði í 17. sæti og var fjórum sætum frá fallsvæðinu.
Síðustu Englandsmeistarar sem féllu voru Manchester City 1936-37. City hafði þá unnið sinn fyrsta Englandsmeistaratitil, eins og staðan er með Leicester í dag.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir