Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 04. maí 2017 17:30
Magnús Már Einarsson
Best í 2. umferð: Best að vera með kærustunni í liði
Sandra Mayor (Þór/KA)
Sandra í leiknum gegn Val í síðustu viku.
Sandra í leiknum gegn Val í síðustu viku.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Ég var ánægð með frammistöðuna gegn Breiðabliki en ég tel að það sé alltaf hægt að bæta sig og gera betur," sagði Sandra Mayor, leikmaður Þórs/KA við Fótbolta.net í dag um 1-0 sigurinn á Breiðabliki í fyrradag.

Sandra er leikmaður 2. umferðar í Pepsi-deildinni en hún átti frábæran leik gegn Blikum. Sandra lagði meðal annars upp eina mark leiksins.

Gegn Val í síðustu viku skoraði Sandra sigurmarkið en Þór/KA hefur byrjað mótið á tveimur sigrum gegn öflugum andstæðingum.

„Lykillinn að því var að leggja hart að sér í 90 mínútur, berjast um alla bolta og halda skipulagi," sagði Sandra aðspurð út í góða byrjun Þórs/KA.

Þór/KA var spáð 4. sæti deildarinnar en eftir góða byrjun er Sandra sannfærð um að liðið geti barist um Íslandsmeistaratitilinn. „Já, ég trúi því 100% af öllu mínu hjarta."

Í fyrra var Sandra valinn í lið ársins í Pepsi-deild kvenna hjá Fótbolta.net en þessi mexíkóska landsliðskona kann vel við að spila á Íslandi.

„Þessi deild er mjög líkamlega sterk og það er mikið af gæða leikmönnum í deildinni," sagði Sandra en hún kann gríðarlega vel við sig á Íslandi.

„Ég elska Akureyri. Þetta er fallegur og rólegur bær. Ég elska fólkið hérna."

Í vetur kom mexíkóska landsliðskonan Bianca Sierra til Þórs/KA en hún og Sandra eru kærustupar. Hvernig er það að spila í sama liði og kærastan?

„Það er best. Við ýtum hvor annarri áfram í að verða betri á hverjum degi bæði innan og utan vallar. Að hafa hana mér við hlið er stór bónus," sagði Sandra að lokum.

Domino's gefur verðlaun
Leikmaður umferðarinnar í Pepsi-deild kvenna í sumar fær pizzuveislu frá Domino's.

SJá einnig:
Leikmaður 1. umferðar - Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjarnan)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner