Króatísk yfirvöld hafa hafið rannsókn á fölskum vitnisburði Luka Modric fyrirliða króatíska landsliðsins.
Modric sem er leikmaður Real Madrid er talinn hafa logið í vitnastúkunni í skattamáli Zdravko Mamic fyrrverandi yfirmanni hans í Króatíu.
Reuters segir frá þessu í kvöld en Mamic stýrði Dinamo Zagreb á sínum tíma þegar Modric lék með liðinu.
Mamic, Zoran bróðir hans og tveir aðrir eru fyrir dómstólum í spillingarmáli sem er talið hafa kostað Dinamo liðið 15 milljónir evra og ríkið 1,5 milljónir evra.
Modric var beðinn um að bera vitni í málinu í tengslum við tubmilljóna punda félagaskipti hans til Tottenham árið 2008. Þar skipti máli hvenær hann skrifaði undir samninginn og Modric er talinn hafa logið til um að hafa samið í júlí 2004. Það skipti máli útaf framtíðar upphæðum sem félagið átti fá fyrir næstu sölur en útaf þessari dagsetningu fékk Modric helming söluupphæðarinnar þegar hann yfirgaf félagið 2008. Á meðan rannsókn málsins stóð hafði Modric sagst hafa skrifað undir eftir að hann var seldur til Tottenham.
Athugasemdir