Branthwaite, Zirkzee og Olise til Man Utd? - Potter til Hollands - Nunez til Barca og Osimhen til Chelsea
   mið 19. júlí 2017 14:45
Arnar Daði Arnarsson
Guðni Th. snæddi með stelpunum okkar
Guðni Th. ásamt fyrirliðanum Söru Björk
Guðni Th. ásamt fyrirliðanum Söru Björk
Mynd: KSÍ
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands heimsótti stelpurnar okkar á Gullna túlipanann hótel stelpnanna í hádeginu í dag og borðaði með þeim hádegismat.

Guðni Th. var að vanda mættur á Koning Willem II völlinn í Tilburg í gærkvöldi þegar Ísland mætti Frakklandi í fyrsta leik liðsins á Evrópumótinu.

Hann var í viðtali hér á Fótbolta.net í gærdag þar sem hann var ásamt tæplega þrjú þúsund Íslendingum að hita upp fyrir leikinn í miðbæ Tilburg. Þar sagðist hann ætla fylgja íslenska liðinu að minnsta kosti út riðla keppnina.

Næsti leikur stelpnanna er á laugardaginn þegar liðið mætir Sviss. Bæði lið eru án stiga eftir fyrstu umferðina.

Hér að neðan getur þú séð myndir af því þegar Guðni Th. heimsótti stelpurnar okkar.
Athugasemdir
banner
banner
banner