Branthwaite, Zirkzee og Olise til Man Utd? - Potter til Hollands - Nunez til Barca og Osimhen til Chelsea
   þri 03. október 2017 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Eiður Smári heilsaði upp á Mourinho
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Smári Guðjohnsen, einn besti fótboltamaður Íslandssögunnar, birti í dag mynd á Instagram þar sem fer vel með honum og Jose Mourinho, stjóra Manchester United.

Eiður þekkir vel til Mourinho en þeir unnu saman hjá Chelsea og urðu saman Englandsmeistarar.

„Frábært að hitta þennan," skrifar Eiður við mynd af honum og Mourinho á Instagram.

Mögulegt er að Mourinho og Eiður hafi verið að hittast fyrir heimildarmyndina sem Sverrir Þór Sverisson, Sveppi, er að gera um vin sinn, Eið Smára.

Myndin verður sýnd í Sjónvarpi Símans á næsta ári.

Hér að neðan er myndin af þeim félögum.

Great catching up with this man @josemourinho #thespecialone #memories

A post shared by Eidur Gudjohnsen (@eidurgudjohnsen) on


Athugasemdir
banner
banner