Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. desember 2016 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vilja fá Gylfa aftur til Tottenham - „Bring back Siggy"
Gylfi hefur verið besti maður Swansea á þessu tímabili
Gylfi hefur verið besti maður Swansea á þessu tímabili
Mynd: Getty Images
Það er mikið rætt um endurkomu Gylfa Þórs Sigurðssonar til Tottenham þessa stundina eftir ummæli Mauricio Pochettino, stjóra Tottenham, sem sagði að hann teldi Gylfa vera full­kom­inn fyr­ir Totten­ham og það hefði verið synd að hann hafi verið seld­ur frá fé­lag­inu.

Gylfi hefur farið á kostum með Swansea að undanförnu en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp önnur fjögur á þessu tímabili.

„Eftir að hann fór til Swansea höfum við séð hvernig hann hefur vaxið og við sjáum að hann var fullkominn leikmaður fyrir okkur," sagði Pochettino um Gylfa.

Pochettino seldi Gylfa til Swansea þegar hann tók við stjórastarfinu hjá Tottenham árið 2014, en Tottenham fékk þá á móti bakvörðinn Ben Davies og markvörðinn Michel Vorm.

Stuðningsmenn Tottenham hafa í dag verið duglegir að tjá sig á Twitter og vilja margir þeirra sjá Gylfa aftur í búningi Tottenham á næstunni.

Hér að neðan má sjá nokkur ummæli frá stuðningsmönnum Tottenham um okkar mann.
























Sjá einnig:
Pochettino: Gylfi væri fullkominn leikmaður fyrir okkur
Athugasemdir
banner
banner