Allegri orðaður við Man Utd - Modric að framlengja við Real Madrid
   fös 02. desember 2016 10:44
Magnús Már Einarsson
Pochettino: Gylfi væri fullkominn leikmaður fyrir okkur
Gylfi í leik með Swansea.
Gylfi í leik með Swansea.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham, segir að það hafi verið mistök að selja Gylfa Þór Sigurðsson til Swansea árið 2014. Pochettino var þá stjóri Tottenham en hann ákvað að leyfa Gylfa að fara til Swanea.

Gylfi hefur farið á kostum með Swansea að undanförnu en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp önnur fjögur á þessu tímabili.

„Eftir að hann fór til Swansea höfum við séð hvernig hann hefur vaxið og við sjáum að hann var fullkominn leikmaður fyrir okkur," sagði Pochettino.

„Félagið tók þessa ákvörðun á sínum tíma og hann ákvað að fara aðra leið og ganga í raðir Swansea."

Gylfi mætir á sinn gamla heimavöll á White Hart Lane á morgun þegar Tottenham fær Swansea í heimsókn.
Athugasemdir
banner
banner
banner