Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   fim 05. apríl 2018 16:40
Elvar Geir Magnússon
Lendava, Slóveníu
Ási Haralds: Getum ekki búist við 6-0 aftur
Icelandair
Ási Haralds á æfingu fyrir leikinn gegn Slóveníu.
Ási Haralds á æfingu fyrir leikinn gegn Slóveníu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásmundur Haraldsson aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins tók að sjálfsögðu þátt í reitaboltanum á æfingunni í Lendava í dag. Fyrir reitinn ræddi hann við Fótbolta.net um leikinn, gegn Slóveníu í undankeppni HM, sem fram fer á morgun.

„Við eigum mjög góðar minningar héðan," segir Ási og vitnar þar í 6-0 útisigur gegn Slóveníu árið 2015. Getum við unnið það stóran sigur á morgun?

„Nei ég held að við nálgumst þetta ekki þannig. Með hverju árinu sem líður verða allar þjóðir sem við spilum á móti betri í fótbolta. Bilið milli liðanna minnkar og við getum ekki búist við svona úrslitum á morgun."

Slóvenía hefur aðeins náð að sækja sín stig gegn Færeyjum og þetta er leikur sem Ísland á að vinna og verður að vinna í baráttunni um að komast á HM.

„Ef allt er í lagi hjá okkur, ef allir eru í standi og fókus til staðar þá er þetta leikur sem við eigum að vinna. Við gerum kröfu til okkar sjálfra að ná í þrjú stig."

Ásmundur segir að allir okkar leikmenn séu í standi og ekkert eigi að trufla hann og Frey Alexandersson í því að velja sitt sterkasta lið. Sjáðu viðtalið við hann í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.

Athugasemdir
banner