Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 07. apríl 2014 14:01
Magnús Már Einarsson
Suarez stoppaði til að fara í fótbolta með fötluðum strák
Mynd: Netið
Mynd sem kom á netið í dag hefur vakið mikla athygli en á henni er Luis Suarez framherji Liverpool ásamt ungum strák með Downs heilkenni.

Suarez sá sjö ára strákinn að leik með Liverpool fótbolta og ákvað að stoppa til að spila við hann.

,,Hann kom hlaupandi og tók boltann af frænda mínum. Frændi minn áttaði sig fyrst ekki á að þetta var Suarez og hélt að þetta væri pirrandi maður," sagði frændi stráksins um myndina.

,,Luis spjallaði við frænda minn og leyfði honum að klobba sig. Já, það er rétt, sjö ára frændi minn hefur klobbað Suarez."

,,Auðvitað var frændi minn himinlifandi þegar hann áttaði sig á að þetta var Suarez og hann bað um mynd af honum."

,,Þegar frændi minn verður eldri þá mun hann eiga mynd af sér með einum besta leikmanni Liverpool sem hefur spilað á Anfield. Takk Suarez. Þú ert ótrúlegur náungi."

Athugasemdir
banner
banner
banner