Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   mið 10. janúar 2018 09:16
Magnús Már Einarsson
Myndband: Mörk Viðars í gærkvöldi
Mynd: Getty Images
Viðar Örn Kjartansson skoraði tvívegis í 3-0 sigri Maccabi Tel Aviv á Maccabi Netanya í ísraelsku deildinni í gærkvöldi.

Fyrra mark Viðars kom á 82. mínútu og það síðara á 90. mínútu.

Fyrr í leiknum hafði Viðar brennt af vítaspyrnu en hann skoraði síðan tvívegis til að innsigla sigur Maccabi Tel Aviv.

Viðar Örn og félagar eru í fjórða sæti deildarinnar en þessi sigur var mikilvægur upp á það að halda í við hin liðin sem eru fyrir ofan. Maccabi er tveimur stigum frá toppsætinu.

Hér að neðan má sjá mörkin.


Athugasemdir
banner
banner
banner