Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
   mán 12. janúar 2015 11:00
Magnús Már Einarsson
Eiður Smári: Menn eru ennþá að leita að boltanum
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen.
Mynd: Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen skoraði úr vítaspyrnu þegar Bolton gerði jafntefli við Leeds um helgina.

Eiður hefur skorað nokkur mörk úr vítaspyrnum á ferli sínum með félagsliðum en hann rifjaði upp í viðtali við Bolton News vítaspyrnu sem hann klúðraði í leik með íslenska landsliðinu gegn Litháen árið 2002.

,,Ég hef ekki klúðrað víti með félagsliðum en ég gerði það með Íslandi fyrir um það bil 60 árum síðan," sagði Eiður.

,,Ég var búinn að skora tvö mörk í leiknum þegar ég skaut yfir og ég held að þeir séu ennþá að leita að boltanum. Það er það eina sem ég man."
Athugasemdir
banner
banner
banner