Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 14. mars 2024 17:30
Elvar Geir Magnússon
Southgate segir rangt að samband White við þjálfarateymið sé slæmt
Ben White varnarmaður Arsenal.
Ben White varnarmaður Arsenal.
Mynd: Getty Images
Kalvin Phillips.
Kalvin Phillips.
Mynd: EPA
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, opinberaði í dag hóp sinn fyrir vináttulandsleiki gegn Brasilíu og Belgíu síðar í þessum mánuði.

Eftir að hópurinn var opinberaður svaraði Southgate spurningum fréttamanna og segir ólíklegt að varnarmaðurinn Ben White verði í EM hópnum í sumar.

„Ég vil ekki loka neinum dyrum en það yrði erfitt fyrir hann að komast í hópinn í júní, aðrir leikmenn hafa verið í hópnum og spilað reglulega. Í svona stöðu verður að horfa til þeirra sem hafa tekið þátt í ferðalaginu alla leið," segir Southgate en White, sem spilar fyrir Arsenal, baðst undan því að vera valinn í komandi verkefni.

White hefur ekki verið í landsliðshópnum síðan á HM í Katar en þá var hann sendur heim en enskir fjölmiðlar sögðu hann hafa rifist við aðstoðarþjálfara liðsins, Steve Holland.

„Ég veit ekki ástæðuna en ég virði hans ákvörðun. Ég skil dyrnar eftir opnar vegna þess að hann er góður leikmaður. Það er ekkert að sambandinu milli okkar og heldur ekki milli hans og Steve Holland. Ég er ekki hrifinn af þeim fréttaflutningi. Ég skal sætta mig við að logið sé upp á mig en ég er ekki tilbúinn að samþykkja að það sé gert við teymið mitt. Þetta er ekki ástæðan fyrir því að Ben er ekki með okkur," segir Southgate.

Miðjumaðurinn Kalvin Phillips, sem er hjá West Ham á láni frá Manchester City, fékk ekki kallið en hann hefur átt erfitt uppdráttar.

„Hann hefur einfaldlega ekki spilað nægilega vel. Hann veit að við höfum mikið álit á honum. Góða útgáfan af honum er mikilvægur leikmaður fyrir okkur en því miður hefur ekki gengið vel hjá honum. Ég sagði við hann í lok síðasta árs að ef hann fengi lítið að spila þá yrði það vandamál. Hann skilur ákvörðunina," segir Southgate.
Athugasemdir
banner
banner
banner