Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 14. mars 2024 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stærstu félög Evrópu berjast um liðsfélaga Hákonar
Leny Yoro.
Leny Yoro.
Mynd: Getty Images
Chelsea á Englandi hefur sýnt Leny Yoro, varnarmanni Lille í Frakklandi, áhuga að undanförnu.

Lundúnafélagið er hins vegar ekki það eina sem hefur áhuga á hinum 18 ára gamla Yoro.

Yoro hefur átt frábært tímabil með Lille þrátt fyrir ungan aldur en hann er einnig orðaður við Paris Saint-Germain og svo spænska stórveldið Real Madrid.

PSG er talið leiða kapphlaupið á þessum tímapunkti en Lille vonast til að halda Yoro.

Hjá Lille spilar Yoro með íslenska landsliðsmanninum Hákoni Arnari Haraldssyni.
Athugasemdir
banner
banner