Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 15. febrúar 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Ronaldo: Ég stóð upp úr gegn PSG
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo leikmaður Real Madrid segist hafa staðið upp úr í 3-1 sigrinum á PSG í síðustu viku.

Ronaldo skoraði tvívegis í leiknum en hann varð um leið fyrsti leikmaðurinn til að skora 100 mörk í Meistaradeildinni með einu og sama liðinu.

„Þetta var mjög mikilvægt. Þegar þú skorar mörk og liðið vinnur þá er það alltaf sérstakt," sagði Ronaldo eftir leikinn í gær.

„Í dag (í gær) stóð ég upp úr. Ég hjálpaði liðinu að vinna með því að skora tvö mörk en við vitum að viðureigninni er ekki lokið ennþá."

„Við þurfum að fara þangað til að reyna að vinna og skora mörk til að létta á pressunni og komast í næstu umferð."

Athugasemdir
banner
banner
banner