Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 15. mars 2024 14:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Eiður Aron fer með Vestra í æfingaferð
Eiður Aron.
Eiður Aron.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður Aron Sigurbjörnsson, sem fékk samningi sínum við ÍBV rift í gær, fer með Vestra í æfingaferð til Spánar. Þetta staðfesti Samúel Samúelsson, formaður Vestra, í samtali við Fótbolta.net í dag.

Þeir Eiður Aron og Davíð Smári Lamude, þjálfari Vestra, þekkjast vel og þegar möguleikinn á því að Eiður gæti farið með í æfingaferðina kom upp var það tækifæri gripið.

Sammi segir að ekkert sé ákveðið varðandi hvort Eiður muni semja við Vestra og spila með liðinu í sumar. Hann var orðaður við Vestra fyrr í vetur.

Vestri er nýliði Í Bestu deildinni og framundan er lokasprettur í undirbúningi fyrir tímabilið í efstu deild. Fyrsti leikur Vestra verður gegn Fram þann 7. apríl.
Athugasemdir
banner
banner