Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 15. mars 2024 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jayden Danns gerir nýjan samning við Liverpool
Jayden Danns.
Jayden Danns.
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn efnilegi Jayden Danns hefur skrifað undir nýjan samning við Liverpool.

Ekki kemur fram á heimasíðu Liverpool hversu lengi samningurinn gildir, en þar segir bara að hann sé til langstíma.

Danns, sem hefur verið hjá Liverpool frá átta ára aldri, hefur átt eftirminnilegar vikur að undanförnu. Hann spilaði sinn fyrsta aðalliðsleik gegn Luton í síðasta mánuði og hjálpaði liðinu svo að vinna deildabikarinn á Wembley.

Í kjölfarið kom hinn 18 ára gamli Danns inn af bekknum og skoraði tvisvar í 3-0 sigri gegn Southampton í FA-bikarnum á Anfield.

Danns hefur þá skorað 21 mark með unglingliðum Liverpool á þessu tímabili en hann þykir mjög efnilegur.
Athugasemdir
banner