Getafe 1 - 0 Girona
1-0 Yellu Santiago ('33)
1-0 Yellu Santiago ('33)
Spútnik lið spænska deildartímabilsins er svo gott sem úr leik í titilbaráttunni eftir enn einn tapleik.
Girona heimsótti Getafe í dag og tapaði 1-0 þökk sé marki frá Yellu Santiago sem kom í fyrri hálfleik.
Leikurinn var nokuð jafn þar sem bæði lið fengu fín færi til að skora, en tókst ekki að bæta marki við leikinn.
Þetta var fjórði tapleikur Girona í síðustu sex leikjum í La Liga og er liðið núna tíu stigum á eftir toppliði Real Madrid.
Barcelona fær tækifæri til að hirða annað sætið af Girona þegar liðið heimsækir Atlético Madrid í stórleik annað kvöld.
Athugasemdir