Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
   þri 16. apríl 2013 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Nýtt fyrirtæki með vörur tengdar knattspyrnu
Mynd: B&J Sport
B&J Sport Sf. sem sérhæfir sig í sölu á vörum tengdri knattspyrnu og knattspyrnuþjálfun er í tilefni vorsins með góð tillboð fyrir alla fótboltaáhugamenn sem vilja vera með réttu græjurnar fyrir sumarið.

Tilboðin má sjá á vefsíðu fyrirtækisins www.icelandsport.net

Fyrirtækið er einkum með á boðstólnum hluti sem gera knattspyrnuþjálfun og knattspyrnuiðkun fjölbreyttari og skemmtilegri, hvort sem um er að ræða tækniþjálfun, eða þol- og snerpuþjálfun.

Þetta smáa fyrirtæki er með höfuðstöðvar á Akureyri en er einnig með hluta lagersins á höfuðborgarsvæðinu. Þjálfarar, íþróttafélög og knattspyrnuáhugamenn um allt land geta að sjálfsögðu fengið vörur sínar sendar hvert á land sem er, séu þeir ekki í stöðu til að ná í vörurnar sjálfir.

B&J Sport er í eigu Jón Stefáns Jónssonar, þjálfara meistaraflokks kvenna hjá Haukum og Birkis Hermanns Björgvinssonar, yngri flokka þjálfara hjá Þór.
Athugasemdir
banner
banner
banner