Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 17. mars 2024 11:25
Aksentije Milisic
Man City skráði sig á spjöld sögunnar í gær
Tvenna í gær.
Tvenna í gær.
Mynd: EPA

Manchester City vann 2-0 sigur á Newcastle United í gær í 8 liða úrslitum enska bikarsins en Bernardo Silva gerði bæði mörk liðsins.


Man City vann bikarinn á síðustu leiktíð eftir 2-1 sigur á Manchester United í úrslitaleiknum en eftir sigurinn á Newcastle í gær tókst liðinu að skrá sig á spjöld sögunnar.

Liðið er það fyrsta í sögu enska bikarsins til þess að komast í undanúrslit keppninnar í hvorki meira né minna en sex tímabil í röð.

Magnaður árangur hjá Pep Guardiola og lærisveinum hans og spurning hvort liðinu takist að verja þann elsta og virtasta. Í dag kemur í ljós hvaða lið fylgja Man City og Coventry í undanúrslitin á Wembley í Lundúnum.


Athugasemdir
banner