Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 19. janúar 2015 21:25
Ívan Guðjón Baldursson
VG segir Ödegaard á leið til Real
Mynd: Getty Images
Norska undrabarnið Martin Ödegaard fer til Real Madrid ef marka má norska fréttamiðilinn VG.

VG greinir frá því að Real þurfi að greiða 3.5 milljónir evra fyrir leikmaninn, sem eru um 30 milljónir norskra króna eða um 540 milljónir íslenskra króna.

Þá eru ýmis ákvæði í kaupsamningnum sem gera það að verkum að Strömsgodset, félagið sem Ödegaard spilar með, gæti fengið 3.5 milljónir evra til viðbótar ef táningurinn stendur sig vel með félaginu.

Félagsskiptin ættu að verða staðfest á næstu dögum samkvæmt norska miðlinum.
Athugasemdir
banner
banner