Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 22. mars 2024 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Robinho handtekinn á heimili sínu og fluttur í fangelsi
Robinho.
Robinho.
Mynd: Getty Images
Dómstóll í Brasilíu komst í gær að þeirri niðurstöðu að fyrrum fótboltamaðurinn Robinho þurfi að sitja af sér níu ára fangelsi fyrir nauðgun í fangelsi í heimalandi sínu.


Robinho var dæmdur í níu ára fangelsi árið 2017 fyrir nauðgun en atburðurinn átti sér stað í Mílanó árið 2013.

Robinho, sem heitir fullu nafni Robson de Souza, býr í Brasilíu og hefur alltaf neitað sök. Brasilía framselur ekki ríkisborgara sína og því hefur Robinho ekki þurft að dúsa í fangelsi til þessa.

En núna hefur dómstóll í Brasilíu ákveðið að Robinho, sem er fertugur að aldri, þurfi að afplána fangelsisdóminn í heimalandinu.

Lögmaður Robinho reyndi að koma í veg fyrir hann yrði handtekinn í gær og fluttur í fangageymslu þar sem enn er hægt að áfrýja þessari niðurstöðu, en þeirri beiðni lögmannsins var hafnað. Lögreglan réðst í aðgerðir við heimili Robinho í Santos í gær og var hann fluttur í fangelsi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner