Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. mars 2024 21:58
Brynjar Ingi Erluson
Kane á leið aftur til Þýskalands - Verður ekki með á þriðjudag
Mynd: EPA
Enski sóknarmaðurinn Harry Kane mun ekki ná landsleik Englands gegn Belgíu á þriðjudag en þetta staðfesti landsliðsþjálfarinn Gareth Southgate í kvöld.

Kane meiddist í leik með Bayern München rétt fyrir landsleikjatörnina en var samt sem áður valinn í landsliðshópinn fyrir leikina gegn Brasilíu og Belgíu.

Hann var ekki með í 1-0 tapinu gegn Brasilíu í kvöld og verður þá ekki með gegn Belgíu en Southgate greindi frá þessu á blaðamannafundi í kvöld.

„Harry Kane er á leið aftur til Þýskalands þar sem hann mun fá meðhöndlun á ökklameiðslum sínum. Hann verður ekki klár í slaginn fyrir leikinn gegn Belgíu á þriðjudag,“ sagði Southgate.

Bayern reynir nú allt til að gera hann kláran fyrir næsta leik liðsins gegn Borussia Dortmund. Liðið er tíu stigum frá toppliði Bayer Leverkusen.
Athugasemdir
banner
banner
banner