Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 24. mars 2024 23:38
Brynjar Ingi Erluson
Leikmaður PSG gæti farið til Girona í sumar
Mynd: Fulham
Franski vinstri bakvörðurinn Layvin Kurzawa mun yfirgefa Paris Saint-Germain í sumar er samningur hans rennur út.

Kurzawa, sem er 31 árs gamall, hefur aðeins spilað einn leik með PSG á tímabilinu, en hann lék samtals átta mínútur í þeim leik.

Hann hefur verið á mála hjá félaginu í níu ár en lítið sem ekkert spilað síðustu þrjú ár.

Samningur hans rennur út í sumar og er hann að íhuga það að semja við Girona á Spáni.

„Spænsk félög hafa áhuga á honum. Ég er enn sannfærður um að Layvin sé leikmaður í hæsta gæðaflokki. Við höfum áhuga á Girona, sem er með reynslumikinn hóp og á fallegu svæði. Þetta er félag sem spilar skemmtilegan fótbolta. Eins og ég hef sagt þá eru mörg félög sem hafa kynnt hugmyndir sínar fyrir Layvin, þannig nú munum við taka okkur tíma í að taka skynsama ákvörðun,“ sagði umboðsmaður Kurzawa.
Athugasemdir
banner
banner