Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. mars 2024 14:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho vill snúa aftur í sumar
Mynd: EPA

Jose Mourinho hefur verið atvinnulaus síðan hann var látinn taka pokann sinn hjá Roma í janúar.


Hann hefur verið orðaður við Chelsea og Bayern Munchen en þýskir fjölmiðlar greina frá því að hann sé þegar farinn að læra þýsku til að undirbúa sig fyrir starfið hjá Bayern.

Þá sungu stuðningsmenn Chelsea nafnið hans fyrr í þessum mánuði en margir eru orðnir þreyttir á slæmu gengi liðsins undir stjórn Mauricio Pochettino.

Mourinho var í viðtali á kappakstri í Potrúgal á dögunum en þar var hann spurður út í framtíð sína en hann útilokaði ekki að þjálfa félagslið í Portúgal.

„Ekkert. Ég er atvinnulaus, ég er frjáls. En ég vil fara í vinnu, ég vil vinna í sumar," sagði Mourinho.


Athugasemdir
banner
banner