Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. mars 2024 15:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stigafrádrátturinn hjálpar Burnley - „Tökum því klárlega fagnandi”
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Burnley er í fallsæti, fimm stigum frá öruggu sæti þegar liðið á eftir að spila níu leiki.


Jóhann Berg Guðmundsson spilar með liðinu en hann er í gríðarlega mikilvægu landsliðsverkefni með Íslandi þessa dagana.

Samningur hans við Burnley rennur út í sumar en það er möguleiki í samningnum hans um að fá framlengingu um eitt ár í viðbót. Jói ræddi við Fótbolta.net í gær um framtíð hans hjá Burnley.

„Það kemur í ljós bráðlega hvað gerist. Ég er svosem ekkert að spá í því, við eigum enn séns að halda okkur í deildinni. Það er verið að taka stig af liðum sem hjálpar okkur auðvitað og við tökum því fagnandi," sagði Jói Berg léttur í bragði.

„Á meðan maður er í séns þá hugsar maður jákvætt að geta komið sér út úr þessu sem við erum búnir að koma okkur í sem er ekki góð staða en meðan það er séns þá höldum við fast í hann."

Nottingham Forest hefur fengið fjögurra stiga refsingu og Everton fengið sex stiga refsingu.

„Það er búið að tala um að Everton fái einhver fleiri stig (dregin af sér). Við tökum því klárlega fagnandi, við þurfum á allri hjálp að halda. Svo þurfum við að einbeita okkur af okkur. Síðasti leikur var mjög góður. Tókum þrjú stig þar og svo þurfum við að byggja ofan á það," sagði Jói Berg.


Jói bjartsýnn á að geta spilað - „Það róaði taugarnar ansi mikið"
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner