Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 25. apríl 2016 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Dele Alli líklega í bann fyrir að kýla Yacob
Mynd: Getty Images
Dele Alli, tvítugur miðjumaður Tottenham, var kjörinn besti ungi leikmaður tímabilsins í gær en nú er útlit fyrir að hann missi af síðustu leikjum Tottenham í titilbaráttunni.

Tottenham er að spila við West Brom og hefur myndband birst af því þegar Alli kýlir Claudio Yacob, leikmann West Brom, í leiknum.

Dómari leiksins sá ekki atvikið og því er afar líklegt að miðjumaðurinn fái þriggja leikja bann fyrir athæfi sitt.

Myndband af atvikinu er hægt að sjá hér fyrir neðan þar sem Alli kýlir augljóslega í magann á Yacob.



Athugasemdir
banner
banner